Um Okkur
stofnuð 1988
Rafsól rekur rafverktakaþjónustu fyrir einstaklinga, stofnanir, og fyrirtæki þar sem leitast er við að veita viðsktipavinum fyrirtækisins persónulega og markvissa þjónustu. Veitt er ráðgjöf við hönnun raflagna, lýsingar og vöruvals, og tilboð gerð í verkþætti viðskiptavininum að kostnaðarlausu og án skuldbindinga.
Í samstarfi við viðskiptavini okkar vinnum við að lausnum sem skila árangri. Þjónusta okkar markast af skipulagi, frumleika, tækni og öguðum vinnubrögðum.
Við látum verkin tala. Meira um þjónustusvið Rafsólar.
Sagan
- 1988
- Bræðurnir Ómar og Baldur tóku við rekstri rafverkstæði föður síns og stofnuðu í kjölfarið Rafsól ehf.
- 1989
- Starfsemi Rafsólar flutti að Skipholti og samhliða því var opnuð verslun með raflagnaefni, ljós og raftæki á sama stað.
- 2001
- Verslunin var stækkuð um helming og jafnframt var vöruúrval aukið sérstaklega á sviði ljósa, íhluta og dyrasímakerfa.
- 2002
- Heildsalan var stækkuð töluvert þegar Rafsól hóf innflutning á ýmsum vörum fyrir hótel og gistiheimili.
- 2006
- Þjónusta við hótel og gistiheimili var aukin til muna eftir að Rafsól gekk til samstarfs við öflugt sænskt dreifingarfyrirtæki með breiða línu af vörum fyrir hótelrekstur.
- 2008
- Miklar breytingar á rekstri Rafsólar. Verslun Rafsólar var seld ásamt umboðum og rafverktakastarfsemi aukin til muna og starfsemi og skrifstofa Rafsólar flutti að Skúlagötu 30. Umboð fyrir helstu rafvörum voru seld til Glóeyjar, Ármúla 19. Umboð fyrir helstu hótelvörum voru seld til Verslunartæknis, Draghálsi 4. Umboð fyrir Fermax dyrasímakerfum var selt til Rafports, Nýbýlavegi 14.